Hikmyndatækni (Time-lapse)

Hikmyndatækni er aðferð þar sem sérútbúin myndavél tekur myndir af fósturvísunum á 10 til 20 mínútna fresti meðan þeir þroskast í ræktunarskápnum. Þannig getum við fylgst með þroska þeirra á mun nákvæmari hátt en áður hefur verið mögulegt.

Þar sem fósturvísarnir eru óhreyfðir í ræktunarskápnum allan tímann helst umhverfi þeirra stöðugt á meðan myndataka fer fram. Myndirnar eru síðan settar saman í hikmynd sem sýnir þroskun fósturvísisins frá frjóvgun til uppsetningar. Þetta veitir mikilvægar upplýsingar sem geta stutt við val á þeim fósturvísi sem líklegastur er til að leiða til þungunar.

Hvers vegna notum við hikmyndatækni?

Fósturvísar eru mjög viðkvæmir fyrir breytingum á umhverfi sínu, svo sem hitastigi, rakastigi og sýrustigi. Til að stuðla að sem bestum þroska er mikilvægt að aðstæður séu sem stöðugastar og líkst sem mest þeim aðstæðum sem ríkja í líkamanum.

Við hefðbundið eftirlit þarf að taka fósturvísana tímabundið út úr ræktunarskápnum til skoðunar. Með hikmyndatækni er hins vegar hægt að fylgjast með þroskun þeirra án þess að raska ræktunarskilyrðunum. Þetta stuðlar að stöðugra umhverfi fyrir fósturvísana og veitir jafnframt mun meiri upplýsingar um þroska þeirra.

Mikilvægir þroskaáfangar geta átt sér stað á stuttum tíma og hefðbundnar skoðanir ná ekki alltaf að fanga þær breytingar. Með reglubundinni myndatöku fáum við nákvæma yfirsýn yfir þroskunarferlið og getum betur metið gæði fósturvísanna. Þannig styður hikmyndatæknin bæði við val á fósturvísi til uppsetningar og veitir verðmætar upplýsingar sem annars gætu farið fram hjá okkur.

Helstu kostir hikmyndatækni

  • Fósturvísarnir eru áfram í stöðugu og öruggu ræktunarumhverfi
  • Hægt er að fylgjast með þroskun þeirra allan sólarhringinn
  • Mikilvægir þroskaáfangar fara síður fram hjá okkur
  • Veitir ítarlegri upplýsingar við mat á gæðum fósturvísa
  • Styður við val á fósturvísi til uppsetningar